Ný tæki sett upp í verksmiðju Actavis í Hafnarfirði 12. október 2010 15:35
Ný tæki til lyfjaframleiðslu hafa verið sett upp í stækkaðri lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Þetta er stærsta einstaka fjárfestingin við stækkun verksmiðjunnar, en verðmæti tækjanna er yfir 200 milljónir króna. Í tilkynningu segir að tækin sem um ræðir eru notuð til framleiðslu á kyrni, sem töflur eru gerðar úr. Annars vegar er sérhæfður tækjabúnaður til blöndunar og hins vegar búnaður sem myndar kyrnið við sérstaklega stýrðar aðstæður í loftflæði. Tækin eru keypt frá Bandaríkjunum. "Við reiknum með að framkvæmdum ljúki fyrir áramót. Á þeim tíma verður einnig unnið að kvörðunum og gildingum á öllum tækjabúnaði sem tilheyrir þessum nýjasta hluta lyfjaverksmiðjunnar í Hafnarfirði," segir Jón Gunnar Jónsson, framkvæmdastjóri Actavis hf á Íslandi. „Það eru gerðar gríðarlega strangar kröfur til lyfjaframleiðslu og það er mjög flókin framkvæmd að sannreyna að húsnæðið og allur búnaður uppfylli ýtrustu kröfur. Hvert einasta herbergi verður að hafa rétta loftræstingu til að verja framleiðsluna fyrir óæskilegum áhrifum." Við stækkunina eykst framleiðslugeta Actavis á Íslandi um 50%, í um einn og hálfan milljarð taflna á ári. Núverandi verksmiðja er keyrð á vöktum allan sólarhringinn alla daga vikunnar og annar tæplega eftirspurn. Vel hefur gengið að ráða í lausar stöður og undirbúa þannig starfsemina fyrir aukin umsvif. Starfsmenn Actavis á Íslandi eru nú orðnir fleiri en 700. Starfsfólki hefur verið bætt við í pökkun og töfluslætti, auk þess sem ráðið hefur verið í störf á gæðasviði og á fleiri sviðum í tengslum við stækkunina. Alls er reiknað er með að starfsfólki í verksmiðjunni fjölgi um 50 á þessu ári og er þegar búið að ráða í flest þeirra starfa. Þá vinna um 40 starfsmenn nú að stækkunarframkvæmdunum, auk hönnuða sem eru að leggja lokahönd á sinn verkþátt.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira