Viðskipti innlent

Atvinnuleysi minnkar áfram, mælist nú 7,1%

Skráð atvinnuleysi í september 2010 var 7,1% en að meðaltali 11.547 manns voru atvinnulausir í september og minnkar atvinnuleysi um 0,2 prósentustig frá ágúst, eða um 549 manns að meðaltali.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að körlum á atvinnuleysisskrá fækkar um 156 eða um 0,1 prósentustig að meðaltali en konum fækkar um 393 að meðaltali eða um 0,5 prósentustig.

Mest fækkar atvinnulausum hlutfallslega á Norðurlandi eystra en þar fækkar um 90 manns á atvinnuleysisskrá að meðaltali. Atvinnuleysið er 8% á höfuðborgarsvæðinu en 5,4% á landsbyggðinni.

Mest er það á Suðurnesjum 11,3%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,2%. Atvinnuleysið er 7,2% meðal karla og 6,9% meðal kvenna.

Alls voru 12.650 atvinnulausir í lok september. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 10.444, af þeim voru 2.925 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl, á kynningarfundi og í vinnumiðlun.

Fækkun atvinnulausra í lok septembermánaðar frá lokum ágúst nam 64, en 76 fleiri karlar voru á skrá og 140 færri konur. Á landsbyggðinni fjölgar um 96 en fækkar um 160 á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.270 og fækkar um 476 frá lokum ágúst og er um 57% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok september. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar úr 4.454 í lok ágúst í 4.534 í lok september.

Alls voru 1.996 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok september en 2.012 í lok ágúst eða um 16 % allra atvinnulausra í september og fækkar um 16 frá því í ágúst. Í september 2009 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 2.435 og hefur því fækkað um 439 frá september 2009.

Á vefsíðunni segir síðan að yfirleitt byrjar árstíðasveifla að hafa áhrif til aukningar atvinnuleysis í október. Í október 2009 var atvinnuleysi 7,6 % og jókst úr 7,2 % í september. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í október aukist og verði á bilinu 7,2 %‐7,6 %.

 












Fleiri fréttir

Sjá meira


×