Erlendir aðilar minnka við sig ríkisbréfaeignir 12. október 2010 14:48
Eignarhlutdeild erlendra aðila í ríkisbréfum hefur minnkað þó nokkuð á fyrstu átta mánuðum ársins. Þannig áttu erlendir aðilar 52% útistandandi ríkisbréfa um síðust áramót en í lok ágúst var hlutdeild þeirra komin niður í 42%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ekki hafi þeir þó fært sig yfir í ríkisvíxlana þar sem eignarhlutdeild þeirra í útistandandi víxlum hefur minnkað að sama skapi. Virðast þeir því almennt áhugaminni um ríkisskuldabréf og kann stærri hluti krónueigna þeirra nú að vera í formi innstæðna en verið hefur. Erlendir aðilar eru enn stærstu eigendur stuttra ríkisbréfa og áttu þeir um 74% af ríkisbréfum sem eru með gjalddaga á árunum 2010 til og með 2013, sem er svipuð hlutdeild og þeir áttu um síðustu áramót. Á hinn bóginn virðast þeir enn sem komið er hafa lítinn áhuga á nýjasta ríkisbréfaflokknum sem leit fyrst dagsins ljós í ágúst síðastliðnum. Í lok ágúst var flokkurinn 6,8 milljarða kr. af stærð og nam eignarhlutdeild erlendra aðila einungis 3%. Ekki jókst áhugi þeirra á flokknum í útboðinu um hann í september en samkvæmt Markaðsupplýsingum sem Lánamál sendu frá sér í gær kemur fram að erlendir aðilar hafi ekkert keypt í flokknum í því útboði. Ekki hefur áhugi útlendinga heldur aukist á lengri ríkisbréfum, þ.e. ríkisbréfum sem eru með gjalddaga 2019 og svo 2025, en almennt hafa þeir reynst tregir til að kaupa í lengri flokkum ríkisbréfa enda hafa þeir gjarnan haft það að markmiði að binda fé sitt sem styst hér á landi
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira