Eurostat mælir 4,6% verðbólgu hér á landi 16. nóvember 2010 12:03
Verðbólgan hér á landi var 4,6% í október samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) tekur saman og birti nú í morgun. Minnkar því verðbólgan um 0,5 prósentustig milli mánaða en hún var 5,1% hér á landi í september samkvæmt vísitölunni. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á þennan mælikvarða hefur verðbólgan hjaðnað umtalsvert síðasta árið en í október í fyrra mældist hún 13,8%. Meginástæða hjöðnunar verðbólgunnar er að áhrif gengislækkunar krónunnar á verðbólgu sem varð í aðdraganda og samhliða hruni bankakerfisins hér á landi á árinu 2008 eru nú nær horfin og tekin eru við áhrif styrkingar krónunnar frá upphafi árs. Á sama tíma og verðbólga minnkar hér á landi eykst hún í flestum öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þannig var verðbólgan að meðaltali 2,3% í ríkjum EES nú í október en hafði verið 2,2% mánuðinn á undan. Verðbólgan er nokkuð minni ef tekið er mið af ríkjum evrusvæðisins, en þar mældist verðbólgan 1,9% í október en hafði verið 1,8% í september. Á milli mánaða eykst verðbólgan mest í prósentustigum talið í Finnlandi, en þar fór hún úr 1,4% í 2,3%. Mest dregur úr verðbólgu milli mánaða hér á landi og svo á Grikklandi þar sem verðbólgan fór úr 5,7% í 5,2%. Engu að síður mældist verðbólgan í októbermánuði næstmest á Grikklandi og þriðja mest hér á landi en mest er hún í Rúmeníu, eða um 7,9%. Aðeins Írland upplifði ástand verðhjöðnunar í október, en þar hefur samræmd vísitala lækkað um 0,8% á síðustu tólf mánuðum. Ekki er við öðru að búast miðað við verðbólguhorfur hér á landi en að munurinn á Íslandi og öðrum ríkjum EES haldi áfram að minnka næsta kastið.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira