Viðskipti innlent

Fleiri farþegar með Icelandair

samgöngumál Farþegar sem ferðuðust með Icelandair voru tólf prósentum fleiri í júlí en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í flutningatölum fyrirtækisins.

Rúmlega 215 þúsund flugu með Icelandair í júlí. Fyrstu sjö mánuði ársins voru farþegarnir rúmlega 808 þúsund talsins, ellefu prósentum fleiri en í fyrra.

Farþegum Flugfélags Íslands fækkaði hins vegar um þrjú prósent. - þeb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×