Viðskipti innlent

Gengi hlutabréfa Össurar lækkaði um 1,52 prósent

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, virðist fyrir sér gervifót frá fyrirtækinu.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, virðist fyrir sér gervifót frá fyrirtækinu. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,52 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdu bréf Marels, sem lækkaði um 1,07 prósent og færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum. Gengi hlutabréfanna fór niður um 0,62 prósent.

Á sama tíma hækkaði gengi hlutabréfa hins færeyska Eik banka um 3,37 prósent.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,15 prósent og endaði í 996,8 stigum.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×