Bílaleiga Akureyrar kaupir 200 nýja Volkswagen og Skoda 16. mars 2010 09:43 Samningur um kaup Bílaleigu Akureyrar á 200 Volkswagen og Skóda bifreiðum innsiglaður með handabandi við höfuðstöðvar Heklu við Laugaveg. Frá vinstri: Bergþór Karlsson framkvæmdastóri Hölds í Reykjavík, Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds, Knútur G. Hauksson forstjóri Heklu og Marinó Björnsson sölustjóri Heklu.
Bílaleiga Akureyrar -Höldur ehf. hefur samið við Heklu um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentir verða á vormánuðum. Í tilkynningu um söluna segir Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds að fyrirtækið leggja áherslu á að bjóða nýja og örugga gæðabíla sem eru hagkvæmir í rekstri. Þess vegna eru Volkswagen Golf og Skoda Octavía stór hluti þess flota sem Bílaleiga Akureyrar hefur á boðstólum. Steingrímur segir að með hækkandi eldsneytisverði skipti sparneytni bílanna sífellt meira máli og þar komi Volkswagen Golf og Skoda Octavia sterkir inn. „Bókanir fyrir sumarið benda til þess að eftirspurn eftir bílaleigubílum verði meiri í ár en í fyrra. Síðasta ár var gott og nú sjáum við fram á aukningu, þannig að við getum ekki verið annað en bærilega sáttir," segir Steingrímur. Alls verða á milli 2200 og 2300 bílaleigubílar í rekstri hjá Bílaleigu Akureyrar í sumar og er starfsmönnum bílaleigunnar fjölgað úr 70 í um 100 yfir sumarmánuðina. „Við hjá Heklu höfum átt mikil og góð viðskipti við Bílaleigu Akureyrar árum saman og þess vegna er það okkur mikið ánægjuefni að geta innsiglað áframhaldandi samstarf með jafn myndarlegum samningi og nú liggur fyrir," segir Knútur G. Hauksson, forstjóri Heklu í tilkynningunni. Hann segir að eftirlit og öll umhirða bílaleigubílanna hafi alla tíð verið til fyrirmyndar hjá Höldi og því sé alltaf mikil eftirspurn eftir notuðum bílum frá Bílaleigu Akureyrar þegar þeir komi aftur á markaðinn.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira