Viðskipti innlent

Viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs milli ára

Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var neikvætt um 54,7 milljarðar kr. á fyrstu 10 mánuðum ársins en var neikvætt um 107,6 milljarða kr. á sama tímabili 2009.

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu tíu mánuði ársins 2010 liggur nú fyrir og hefur verið birt á vefsíðu fjármálaráðuneytisins: http://www.fjarmalaraduneyti.is

Tekjur reyndust um 28,7 milljörðum kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin drógust saman um 16,5 milljarða kr. á milli ára.

Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um tæpa 96 milljarða kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×