Steingrímur: Sparisjóðir verði á félagslegum grunni 16. mars 2010 12:03
Ákvarðanir um endurreisn sparisjóðanna verða kynntar á næstu dögum. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra boðar að sparisjóðirnir verði endurreistir með sterka fótfestu í byggðunum og þeir verði reknir á félagslegum grundvelli.Meðan endurreisn stóru bankanna er langt komin, eftir hrunið mikla haustið 2008, hefur gengið hægar að móta framtíð sparisjóðanna. Þeir fóru flestir einnig mjög illa út úr hruninu og raunar aðeins tveir sem stóðu það alveg af sér; Sparisjóður Suður-Þingeyinga og Sparisjóður Strandamanna.Unnið hefur verið að endurreisn sparisjóðanna undir forystu Seðlabankans og fjármálaráðuneytis og vonast menn nú til að þau mál skýrist á allra næstu dögum, að sögn Guðjóns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sparisjóða. Staða þeirra er afar misjöfn en einna flóknust er hún hjá Byr og Sparisjóði Keflavíkur og líklegt að lengri tíma geti tekið að fá niðurstöðu um þeirra framtíð.Við endurreisnina má telja líklegt að farin verði blönduð leið þannig að skuldum sparisjóðanna við Seðlabankann verði að hluta breytt í stofnfé, hluti verð ný lán eða víkjandi lán og að einhver hluti skuldanna verði afskrifaður. Á móti þurfa stofnfjáreigendur að sætta sig við verulega niðurfærslu stofnfjár, jafnvel 80-90 prósent.Fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, sér verkefnið þannig að reynt verði að tryggja að til verði sparisjóðakeðja sem hluti af landslaginu í fjármálaþjónustu. Hann leggi áherslu á að það verði þá eiginlegir sparisjóðir með sterka fótfestu í byggðunum og reknir á þeim félagslega grunni sem sparissjóðir eigi að vera reknir á. "Og þeir lendi aldrei aftur í ógæfu af því tagi sem græðgisvæðingarleiðangurinn var fyrir sparisjóðina," segir Steingrímur.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Sjá meira