„Glórulaust fjárhættuspil“ lífeyrissjóða hugsanlega ólöglegt Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. október 2010 12:15 Stefán Halldórsson, til hægri, var framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga.
Viðskipti Almenna lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs verkfræðinga með skuldatryggingar á Kaupþing og Glitni sem hafa verið kölluð „glórulaust fjárhættuspil" voru hugsanlega ólögleg. Eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi tóku Almenni lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður verkfræðinga þátt í viðskiptum með skuldatryggingar á Kaupþing og Glitni með milligöngu Landsbankans við svissneska bankann UBS fyrir bankahrunið. Féllu bankarnir, græddi svissneski bankinn, en ef íslensku bankarnir héldu velli til 2013 þá fengju lífeyrissjóðirnir vexti á fjárfestinguna. Til að gera langa sögu stutta þá töpuðu lífeyrisjóðirnir milljörðum króna á þessu, en svissneski bankinn græddi, þegar íslensku bankarnir fóru á hliðina. Nú eru vísbendingar um að þessi viðskipti hafi hreinlega verið ólögleg. Því fram kemur í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða að lífeyrissjóðum sé aðeins heimilt að fjárfesta í afleiðum sem dragi úr áhættu viðkomandi lífeyrissjóðs. Fram kemur í skriflegu svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu að skuldatrygging ein og sér verði vart flokkuð annað en sem afleiða. Og að ef lífeyrissjóðir fjárfesti í skuldatryggingum verði þeir að geta sýnt fram á að það sé til þess að draga úr áhættu viðkomandi sjóðs. Með öðrum orðum, lífeyrissjóður Verkfræðinga þarf að geta sýnt fram á að þetta hafi verið til þess fallið að draga úr áhættu, en Þorbergur Steinn Leifsson, sem er í lífeyrissjóði verkfræðinga, hefur kallað viðskipti með þessar skuldatryggingar glórulaust fjárhættuspil. „Við hefðum aldrei átt að gera þetta" Svo virðist sem ekki hafi lífeyrissjóðirnir einir séð eftir þessu, því í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans um þessi viðskipti: „Við hefðum aldrei átt að gera þetta." Á aðalfundi sjóðsins í apríl 2008, hálfu ári fyrir bankahrunið, gagnrýndi núverandi formaður Verkfræðingafélags Íslands, Jóhanna Harpa Árnadóttir, ávöxtun sjóðsins, en í bókun aðalfundarins er gagnrýni hennar lýst svona: „Jóhanna tók undir óánægjuna um ávöxtun sjóðsins og spurði hvort ekki væri mikilvægt að bregðast hratt við hræringum á mörkuðum. Hún sagði að ekkert hefði verið fjárfest í erlendum skuldabréfum á síðasta ári. Hún spurði hvort ekki hefði verið skynsamlegt að selja erlend hlutabréf og kaupa erlend skuldabréf þegar fór aðkreppa að á erlendum mörkuðum í fyrra."
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira