3,1 prósents samdráttur milli ársfjórðunga 4. september 2010 05:15 Tölur Hagstofu sýna fram á neikvæðan hagvöxt milli ársfjórðunga. samdráttur ársins 2009 var sá mesti frá stríðslokum.
Landsframleiðsla dróst saman um 3,1 prósent að raungildi milli fyrsta og annars ársfjórðungs, að því er fram kemur í áætlunum sem Hagstofa birti í gær. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 7,4 prósent, einkaneysla um 3,2 prósent og fjárfesting um 4,7 prósent. Samneysla jókst um 1 prósent. Útflutningur jókst um 2,8 prósent og innflutningur dróst saman um 5,1 prósent. Greiningardeild Arionbanka telur þessar tölur gefa til kynna stýrivaxtalækkun upp á 1 prósent við næsta vaxtaákvörðunarsdag í lok mánaðar. Þá kom einnig fram hjá Hagstofunni að landsframleiðsla dróst saman um 6,8 prósent árið 2009 samkvæmt endurskoðuðum tölum yfir þjóðhagsreikninga. Í tilkynningu frá Hagstofu segir að þetta sé mesti samdráttur sem mælst hafi frá því að gerð þjóðhagsreikninga hófst á Íslandi árið 1945. Þetta boðar lok samfellds hagvaxtarskeiðs frá árinu 1993, en hagvöxtur ársins 2008 er talinn hafa numið einu prósenti. Aftur á móti jókst útflutningur um 7,4 prósent á sama tíma og innflutningur dróst saman um 24,1 prósent. Það leiddi til 132 milljarða afgangs af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu, borið saman við 42 milljarða króna halla árið áður. Þessi mikli bati varð til þess að samdráttur landsframleiðslu varð mun minni en nam samdrætti þjóðarútgjalda. - þj
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Sjá meira