Vangaveltur um plan A og B hjá Seðlabankanum 11. maí 2010 15:17 „Að okkar mati dugar gjaldeyrisforðinn ekki til stórstígs afnáms gjaldeyrishafta alveg á næstunni. Það á við jafnvel þótt þriðja endurskoðun AGS náist í gegn." „
Á síðasta vaxtaákvörðunarfundi mátti ekki merkja annað en að áhugi Seðlabankans að framfylgja Plani A um háa vexti og afnám hafta væri inni, en Plan B, þar sem gjaldeyrishöftin fá framlengt dvalarleyfi og vextir lækkaðir hressilega, væri úti." Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem vangaveltur er um næstu ákvarðanir Seðlabankans. Þar segir að hinsvegar sé ekki hægt að horfa framhjá því að svigrúm Seðlabankamanna til athafna ræðst af því hvernig stóru málunum miðar áfram, þ.e. Icesave, AGS og höftunum. „Óvissan snýst í sjálfu sér ekki um það hvort Peningastefnunefnd miði ákvarðanir sínar við afnám hafta eður ei. Óvissan snýr fyrst og fremst að því hvort aðstæður muni leyfa veruleg skref í afnámi hafta og hvort Seðlabankinn sé þar með þvingaður í Plan B," segir í Markaðpunktunum. „Að okkar mati dugar gjaldeyrisforðinn ekki til stórstígs afnáms gjaldeyrishafta alveg á næstunni. Það á við jafnvel þótt þriðja endurskoðun AGS náist í gegn. En hvað gerist ef þriðja endurskoðun AGS næst ekki í gegn? Eins og fram hefur komið í fréttum miðar hægt í samkomulagsátt varðandi Icesave þessa dagana. Að okkar mati er hæpið að þriðja endurskoðun AGS og frekari lánafyrirgreiðsla vinaþjóða náist í gegn á meðan Icesave-málið er í hnút. Og hvað fæli það í sér? Við teljum kristaltært að án frekari fyrirgreiðslu frá AGS og vinaþjóðum verður afnám gjaldeyrishafta sett á ís. Og Seðlabankinn mun þá þurfa að draga Plan B upp úr pússi sínu. Myndi þá vaxtastefna Seðlabankans taka tillit til slakans í hagkerfinu í mun meiri mæli og yrðu vextir þá væntanlega lækkaðir í hraðari skrefum, e.t.v. ná lágmarki í 2-3%, þ.e. 3-4% lægri en ef afnám hafta verður áfram á dagskrá. Í júlí næstkomandi gæti málið farið að skýrast þar sem næsta endurskoðun AGS er áætluð þá." Til upprifjunar: Hvað felst í Plani A? Seðlabankinn heldur áfram þeirri stefnu sem hann hefur hingað til framfylgt, þ.e. að lýsa því yfir að afnám hafta sé á næsta leyti. Vextir lækka því rólega í átt að ákveðnu vaxtagólfi, (sem liggur líklega á bilinu 5-6%) en Seðlabankamenn hafa ítrekað lagt áherslu á nauðsyn þess að viðhalda háu vaxtastigi til að hægt sé að afnema höftin. Hvað felst í Plani B? Seðlabankinn lýsir því yfir að afnám hafta væri ekki lengur á dagskrá þar sem fjármögnun (s.s. frá AGS og vinaþjóðum) fengist ekki og yrðu vextir því lækkaðir meira en ella við þær kringumstæður.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Neytendur Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira