Framtakssjóður kaupir 30% hlut í Icelandair 14. júní 2010 16:22
Framtakssjóður Íslands gerði í dag bindandi samkomulag við Icelandair Group um að Framtakssjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 3 milljarða króna. Sjóðurinn verður stærsti hluthafinn með um 30% hlut, segir í fréttatilkynningu. Samningurinn er gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem Framtakssjóðurinn mun láta framkvæma á fyrirtækinu. Sjóðurinn mun skrá sig fyrir 1,2 milljörðum nýrra hluta á genginu 2,5 – alls fyrir 3 milljarða króna. Með samningnum skuldbindur Icelandair Group sig til að afla eins milljarðs króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á sama gengi fyrir 31. júlí en í heild er áætlað að selja hlutafé fyrir 5 milljarða króna. Samkomulagið miðar við að stærstu lánveitendur Icelandair Group breyti skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema 8,6 milljörðum króna að söluverði. Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar 25. mars. Engar skuldir samstæðunnar verða afskrifaðar. Daglegur rekstur samstæðunnar hefur gengið vel að undanförnu, en há fjármagnsgjöld og miklar skammtímaskuldir hafa haft neikvæð áhrif á stöðu félagsins. Icelandair Group hefur síðan á síðari hluta ársins 2008 unnið náið með Íslandsbanka og öðrum lánveitendum að fjárhagslegri endurskipulagningu og samningurinn markar mikilvægt skref í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og tryggir fjárhagslega stöðu þess. Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu.
Mest lesið Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira