Verulega dregur úr lækkunum á íbúðaverði 29. september 2010 11:15
Íbúðaverð á landinu öllu hefur nú lækkað um 2,7% að nafnverði og 5,7% að raunvirði á landinu öllu frá síðustu áramótum samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Síðustu 12 mánuði hefur íbúðaverð lækkað um 1% að nafnvirði á landinu öllu en á sama tíma í fyrra nam 12 mánaða lækkun húsnæðis 11%. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þá hafi íbúðaverð á landsbyggðinni hækkað um 3% frá áramótum talið samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð á landsbyggðinni hækkað um 8,6% en í september í fyrra hafði það lækkað um 11%. Mikill viðsnúningur hefur því átt sér stað í verðþróun íbúða á landsbyggðinni samkvæmt þessu. Þá hafa íbúðir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkað í verði um 3% undanfarna 12 mánuði og íbúðir í sérbýli um 8,8% en fyrir ári síðan höfðu íbúðir í bæði sér-og fjölbýli lækkað um rúm 11% undanfarna 12 mánuði. Af þessu má sjá að verulega hefur nú hægt á verðlækkun íbúðarhúsnæðis sem gæti bent til þess að sú djúpa niðursveifla sem ráðið hefur lofum og lögum á íbúðamarkaði allt frá ársbyrjun 2008 sé nú á undanhaldi og botninn í verðlækkununum íbúðarhúsnæðis gæti verið að nálgast. Frá því að íbúðaverð náði hápunkti sínum í byrjun árs 2008 hefur það lækkað um 14% að nafnvirði og 35% að raunvirði. Vísbendingar um veltu á íbúðamarkaði benda í sömu átt, en svo virðist sem skriður sé að komast á þennan markað eftir langvarandi dvala síðustu missera. Haustið hefur farið vel á stað á íbúðamarkaði og á höfuðborgarsvæðinu hafa í september verið gerðir fleiri kaupsamningar um íbúðahúsnæði á viku hverri en sést hefur um langa hríð.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira