Viðskipti innlent

Herdís Dröfn Fjeldsted í stjórn Icelandair

Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið skipuð í stjórn Icelandair Group, en hún hefur verið í varastjórn frá september 2010. Tekur hún við af Auði Finnbogadóttur sem sagði sig úr stjórninni þegar hún tók við stöðu framlvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðings.

Í tilkynningu segir að Herdís Dröfn Fjeldsted er fjárfestingastjóri hjá Framtakssjóði Íslands. Herdís Dröfn var fjárfestingagreinandi hjá Thule Investments frá 2004-2010. Hún er framkvæmdastjóri Vera ráðgjöf ehf og stjórnarformaður Wave Operations Ltd.

Herdís Dröfn er með BSc gráðu í viðskiptafræði og er löggildur verðbréfamiðlari. Herdís stundar nám í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×