Viðskipti innlent

Engin umræða um bága fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar

Yfirlýsing frá Friðjóni Einarssyni oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ:

Í fjölmiðlum í dag hefur ítarlega verið fjallað um 450 miljón kr.

niðurskurð í rekstri Reykjanesbæjar og að hann hafi verði ræddur og kynntur í bæjarráði 9. og 16.september sl.

Að þessu tilefni langar mig að koma eftirfarandi á framfæri:

Engin umræða hefur farið fram í bæjarráði eða bæjarstjórn um niðurskurð eða að sparnaðartillögur meirihlutans. Þetta má glögglega sjá á vef Reykjanesbæjar í fundargerðum bæjarráðs:

http://rnb.is/fundargerdir_new.asp?cat_id=684

Ég sem oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæbæ lýsi furðu minni á málatilbúning sjálfstæðismanna og ítreka fyrri orð mín sem birst hafa í fjölmiðlum í dag.

Við sem sitjum í minnihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar höfum ítrekað lýst yfir vilja til að vinna saman með meirihlutanum í að rétta rekstur bæjarins við eftir viðvarandi hallarekstur undanfarinna ára og koma með lausnir og hugmyndir þar að lútandi.

Meirihlutinn hefur hinsvegar kosið að hunsa þessa viðleitni og ekki einu sinni séð þörf á að upplýsa okkur um aðgerðir í niðurskurði.


Tengdar fréttir

Heyrði um niðurskurð í Reykjanesbæ í fjölmiðlum

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ segist ekki hafa séð tillögur Sjálfstæðismanna um niðurskurð heldur aðeins heyrt af þeim í gegnum fjölmiðla. Aðgerðir séu þó óhjákvæmilegar því bæjarfélagið tapi um fjórum milljónum daglega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×