Málskostnaður slitastjórnar í New York 375 milljónir 17. desember 2010 15:23 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis.
Slitastjórn Glitnis banka segir að kostnaður við málssókn gegn fyrrum hluthöfum og stjórnendum Glitnis fyrir dómstóli í New York nemi nú 375 milljónum króna. Heildarkostnaður þrotabúsins vegna rannsókna til að endurheimta fé nemur 1,2 milljörðum króna. Í tilkynningu frá slitastjórninni segir að sá kostnaður sé ekki hár samanborið við þá hagsmuni sem slitastjórn sé að berjast fyrir að ná til baka til kröfuhafa. „Ákvörðun um málsókn var tekinn á grundvelli ráðgjafar virtrar bandarískrar lögmannsstofu enda snérist málareksturinn að grunni til um útboð sem fór fram í Bandaríkjunum og á grundvelli þarlendra laga," segir ennfremur. „Þess utan háttar svo til að margir hinna stefndu eru með lögheimili utan Íslands. Þá er vakin á því athygli að málinu var vísað frá með skilyrðum um viðurkenningu hinna stefndu á lögsögu íslenskra dómstóla og aðfararhæfi og þess utan var hverjum aðila málsins gert að bera sjálfur sinn kostnað," segir einnig. Þá segir slitastjórnin að u.þ.b. 90% kröfuhafa Glitnis séu erlendir „og eignir að lang mestu leyti staðsettar utan Íslands." Slitastjórnin segir að heildarendurheimtur sem Glitnir hafi þegar fengið greiddar vegna rannsókna frá upphafi til dagins í dag nemi 3.150 milljónum króna. „Heildarkostnaður þessa málaflokks þ.m.t. ofangreindur kostnaður svo og annar lögfræðikostnaður, endurskoðendakostnaður og kostnaður vegna rannsóknarfyrirtækisins Kroll nemur nú alls 1.271 milljón króna."
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira