Euromoney: Forstjóri FME var veifiskati Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 28. mars 2010 19:15
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, var veifiskati og óþarflega áhugasamur um að blanda geði við bankastjórnendur. Þetta kemur fram í grein í blaðinu Euromoney en þar er Jónas harðlega gagnrýndur fyrir að hafa verið klappstýra bankanna fremur en að sinna því eftirlitshlutverki sem honum var falið. Í greininni segir að Ísland hafi í raun verið orðið fjárhagslegt bananalýðveldi árið 2007. Stofnunin sem hafi átt að sjá um eftirlit hafi verið staðsett í hrörlegri byggingu fyrir ofan kínverska núðlubúð. Í uppsveiflunni hafi þeir starfsmenn Fjármálaeftirlitsins sem hafi haft einhvern snefil af skynsemi flutt sig yfir til bankanna. Eftir hafi setið glórulaust fólk með yfirmann sem var óþarflega áhugasamur um að blanda geði við bankastjórnendur, Jónas Fr. Jónsson. Vinasamband hans og Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings hafi verið of náið. Umræður þeirra á milli hafi snúist um veðrið, íþróttir og ferðalög - allt nema fjármál. Jónas hafi verið veifiskati og besti vinur bankamannanna. Hlutverk hans hafi fremur falist í að vera klappstýra bankanna en að hafa eftirlit með þeim. Gunnar Andersen sem tók við sem forstjóri í apríl 2009 fær betri útreið en fyrrirennari hans. Í greininni er haft eftir Gunnari að saga bankahrunsins sé saga vanhæfis, sveitamennsku, sjálfsblekkingar, hörmulegrar stjórnunar og meintrar glæpastarfsemi. Í greininni segir ennfremur að fjármálaeftirlitið hafi síðan í maí á síðasta ári sent 30 mál er varða markaðsmisnotkun til sérstaks saksóknara. Gunnar gerir ráð fyrir að fjöldi mála er varða markaðsmisnotkun eigi eftir að verða að minnsta kosti tvöfalt fleiri í árslok.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira