Viðskipti innlent

Ögurstund í uppsiglingu fyrir Björgólf Thor Björgólfsson

Fari svo að Actavis nái því að kaupa þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm með aðstoð Deutsche Bank er runnin upp ögurstund fyrir Björgólf Thor Björgólfsson.

Reiknað er með að Deutsche Bank muni endurskipuleggja rekstur hins sameinaða fyrirtækis á þann hátt að breyta skuldum Actavis hjá Deutsche Bank í hlutafé þannig að bankinn eigi auðveldara með að selja fyrirtækið seinna meir. Þá vaknar upp spurningin um hvað verði um eignarhlut Björgólfs Thors og hversu mikið hann verður „þynntur út" í endurskipulagningunni.

Reuters hefur fjallað töluvert um kaupin á Ratiopharm síðustu daga. Actavis á í baráttu við bandaríska lyfjarisann Pfizer og Teva sem er stærsta samheitaleyfjafyrirtæki heimsins staðsett í Ísrael.

„Fari svo að Actavis sigri myndi slíkt vera sjaldgæft dæmi um endurskipulagingu með kaupsamningi og þar með draga úr hættunni á því að Deutsche Bank tapi miklu á stærsta hlutanum af áhættulánum sínum frá dögunum frá því fyrir fjármálakreppuna," segir í einni fréttinni um málið á Reuters.

Björgólfur Thor Björgólfsson keypti Actavis árið 2007 með skuldsettri yfirtöku. Stærsti lánveitandinn var Deutsche Bank en heldur nú á yfir 4 milljörðum evra af skuldum Actavis. Aðrir sem lögðu í púkkið voru Landsbankinn, Straumur og Glitnir.

Deutsche Bank reyndi að endurselja skuld Actavis í árslok 2007 til annarra banka. Í boði voru tvö tilboð, annað upp á 3 milljarða evra og hitt upp á einn milljarð evra. Hinsvegar olli aukinn óróleiki á alþjóðamörkuðum á þeim tíma því að enginn vildi kaupa. Í fyrra var síðan reynt að selja Actavis í heild en verðmiði upp á fimm milljarða evra fældi fjárfesta frá kaupunum.

Með því að sameina Ratiopharm og Actavis næst margvíslegt hagræði í rekstri beggja fyrirtækja og myndi hið sameinaða fyrirtæki skila hagræði upp á um 300 milljónir evra sem er svipuð upphæð og nemur árlegum brúttóhagnaði Ratiopharm í dag. Credit Suisse telur að Ratiopharm-Actavis myndi verða þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heimsins hvað sölu varðar.

Ekki er ljóst hver áhrifin af kaupum Actavis á Ratiopharm yrðu á fjárhagsstöðu Björgólfs Thors. Fari svo að Deutsche Bank taki til sín stærstan hlutan af fyrirtækinu með skiptum á skuld fyrir hlutabréf í endurskipulagingunni í kjölfar kaupanna mun eignarhlutur Björgólfs minnka að mun. Eftir slíkt yrði hann tæpast mældur sem milljarðamæringur lengur á alþjóðlega vísu.











Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×