Glitnir lánaði Byr og Byr lánaði FL Group sömu upphæð Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 19. mars 2010 18:47
Glitnir lánaði Byr Sparisjóði þrjá milljarða króna á sama tíma og sjóðurinn lánaði FL Group sömu upphæð. Grunur leikur á að Glitnir hafi með þessum hætti komist hjá því að vera beinn lánveitandi stærsta hluthafa síns, FL Group. Nokkrir af stærstu hluthöfum FL Group, Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ármann og Pálmi Haraldsson, voru á meðal stærstu hluthafa Byrs. FL Group var stærsti hluthafinn í Glitni. Fram hefur komið að viðskipti Glitnis með hlutabréf í FL Group hafi verið nokkuð umfangsmikil. Þá kom fram í lánabók Glitnis sem birtist í Morgunblaðinu haustið 2008 að FL Group hafi verið stærsti einstaki skuldari fyrirtækjahluta lánabókarinnar. Lán til félagsins námu 26,6 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu lánaði Byr sparisjóður rúma 3 milljarða króna til FL Group á vormánuðum 2008 þegar félagið var komið í afar þrönga stöðu. Skilyrði fyrir lánveitingunni hafi verið að Glitnir lánaði sjóðnum sömu upphæð. Það lán var veitt í lok mars sama ár. Á þessum tíma var Jón Sigurðsson forstjóri FL Group en hann sat jafnframt í stjórn Glitnis. Í reglum um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum kemur fram að skuldbindingar einstakra viðskiptamanna eða fjárhagslegra tengdra aðila megi ekki fara yfir 25% af eigin fé fjármálafyrirtækisins. Samkvæmt heimildum mun vera farið yfir lánveitinguna í skýrslunni sem forsvarsmenn Byrs sendu inn til sérstaks saksóknara í síðustu viku. Spurningarmerki er sett við hvort lánveitingin hafi farið þessa krókaleið til að koma í veg fyrir að FL Group færi yfir 25% markið. Guðmundur Geir Gunnarsson, stjórnarformaður Byrs, vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu þar sem það er á rannsóknarstigi.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira