Viðskipti innlent

Heildaraflinn minnkaði um 16,5% milli ára í apríl

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 16,5% minni en í apríl 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 14,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflinn nam alls 79.680 tonnum í apríl 2010 samanborið við 99.267 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 6.000 tonn frá apríl 2009 og nam 34.900 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 12.900 tonnum, sem er samdráttur um 4.000 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 5.200 tonnum, sem er um 2.100 tonnum minni afli en í apríl 2009.

Karfaaflinn dróst saman um tæp 400 tonn samanborið við apríl 2009 og nam rúmum 6.500 tonnum. Um 3.500 tonn veiddust af ufsa, sem er um 500 tonnum minni afli en í apríl 2009. Um 1.200 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 6.700 tonnum. Mest aukning var þar í veiði á blálöngu og keilu.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 40.700 tonnum, sem er um 14.700 tonnum minni afli en í apríl 2009. Af uppsjávartegundum veiddist nær eingöngu kolmunni í mánuðinum, líkt og undanfarin ár.

Flatfiskaflinn var rúm 2.000 tonn í apríl 2010 líkt og árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam 914 tonnum samanborið við 643 tonn í apríl 2009 og annar afli nam tæpum 1.300 tonnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×