Sigurður með mest undir eða 7,8 milljarða í riftuninni 17. maí 2010 15:38
Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, nú eftirlýstur af Interpol, er með mest undir af þeim 80 fyrrum starfsmönnum Kaupþings sem fengu í morgun tilkynningu um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða vegna lána sem bankinn veitti þeim. Sigurði er gert að greiða rúmalega 7,8 milljarða kr. Næstu á eftir honum á listanum, hvað fjárhæðir varðar, er Ingvar Vilhjálmsson framkvæmdastjóri markaðsviðskipta með rétt rúma 5 milljarða kr. sem hann þarf að standa skil á. Í þriðja sæti listans er síðan Ingólfur Helgason bankastjóri með tæpa 3,5 milljarða kr. Eins og fram kemur í tilkynningu frá slitastjórn Kaupþings voru það 20 lykilstjórnendur í bankanum sem fengu niðurfellda tæplega 30 milljarða kr. af persónulegum ábyrgðum sínum eða um 90% af heildarupphæðinni. Lista með heildarlánum til starfsmanna Kaupþings eins og þau stóðu 2008 má finna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og eru tölurnar hér teknar af þeim lista. Efstu menn á þessum lista, í fjárhæðum, eru auk framangreindra: 4. Steingrímur P. Kárason stjórnandi áhættustýringar með tæpa 2,3 milljarð kr.5. Hannes Frímann Hrólfsson aðstoðarframkvæmdastjóri með tæpa 2,3 milljarð kr.6. Guðný Arna Sveinsdóttir yfir fjármála- og rekstrarsviði með rúmlega 1,5 milljarða kr.7. Þorlákur Runólfsson forstöðumaður einkabankaþjónustu með tæplega 1,5 milljarð kr.8. Frosti Reyr Rúnarsson forstöðumaður verðbréfamiðlunnar með tæplega 1,4 milljarð kr.9. Guðni Níels Aðalsteinsson framkvæmdastjóri fjárstýringar með tæplega 1,3 milljarð kr.10. Kristján Arason framkvæmdastjóri einkabankaþjónustu með rúmlega 1,2 milljarða kr.11. Bjarki H. Diego framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs með rúmlega 1,1 milljarður kr.12. Svali H. Björgvinsson framkvæmdastjóri starfsmannasviðs með 772 milljónir kr.13. Stefán Ákason forstöðumaður skuldabréfamiðlunar með 707 milljónir kr.14. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstöðumaður eignastýringasviðs með 558 milljónir kr.15. Helgi Sigurðsson yfirlögfræðingur með 549 milljónir kr. Aðrir starfsmenn en hér um ræðir voru með minna en 500 milljónir kr. í lánum frá bankanum og eru því ekki á lista rannsóknarnefndar Alþingis. Tekið skal fram að í tilkynningu skilanefndar Kaupþings segir að einnig eigi að reyna að rifta ábyrgðum þar sem starfsmennirnir höfðu flutt lánin yfir í eignarhaldsfélög. Þar efst trónir Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri með niðurfellingu upp á tæpa 5,9 milljarða kr.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira