Viðskipti innlent

SA fagna sölunni á HS Orku

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.

Samtök atvinnulífsins fagna samkomulagi um kaup Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. Í tilkynningu frá SA segir að með samkomulaginu hafi sterkt erlent fyrirtæki eignast ráðandi hlut í HS Orku og jafnframt lýst yfir áformum um að standa að öflugri uppbyggingu jarðvarmavirkjana hér á landi.

„Sérstaklega mun þetta gefa HS Orku tækifæri til að halda áfram á fullum krafti uppbyggingu Reykjanesvirkjunar ásamt frekari rannsóknum á svæðinu," segir ennfremur.

Þá er bent á að Magma Energy hafi jafnframt lýst því yfir að starfsemin hér á landi verði rekin með langtímahagsmuni allra hlutaðaeigandi að leiðarljósi. „Fjárfesting þessi er mikilvæg í ljósi mikils atvinnuleysis og hægagangs við stórar fjárfestingar að undanförnu. Með henni er vonast til að framkvæmdir til nýtingar orkunnar geti einnig öðlast byr undir báða vængi," segir að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×