Viðskipti innlent

Slitastjórnir ósammála um innlán

Slitastjórn og skilanefnd Landsbanka Íslands héldu blaðamannafund að loknum kröfufundi á Hilton Nordica-hótelinu í gær. Á annað hundrað fulltrúa kröfuhafa mættu til þess fundar en mikill ágreiningur er um hvernig eigi að flokka kröfur í þrotabú bankans.Fréttablaðið/Vilhelm
Slitastjórn og skilanefnd Landsbanka Íslands héldu blaðamannafund að loknum kröfufundi á Hilton Nordica-hótelinu í gær. Á annað hundrað fulltrúa kröfuhafa mættu til þess fundar en mikill ágreiningur er um hvernig eigi að flokka kröfur í þrotabú bankans.Fréttablaðið/Vilhelm

Slitastjórn Landsbanka Íslands viðurkennir svokölluð heildsöluinnlán sem forgangskröfur og túlkar neyðarlögin með öðrum hætti en slitastjórn Glitnis sem flokkar heildsöluinnlán þess banka með almennum kröfum.

„Þetta er lagalegt mat okkar,“ segir Kristinn Bjarnason, formaður slitastjórnar Landsbankans, spurður hvers vegna afstaðan sé önnur en við uppgjör Glitnis. „Okkar niðurstaða var sú að heildsöluinnlán féllu undir skilgreiningu íslenskra laga um innstæður og þar af leiðandi nytu þær forgangs.“

Ljóst er að 300-400 dómsmál verða höfðuð vegna ágreinings kröfuhafa og slitastjórnar um meðferð krafna. Kristinn Bjarnason sagði að kröfuhafar hefðu gert ágreining við hverja einustu kröfu sem slitastjórnin vill viðurkenna forgang á. Verðmæti heildsöluinnlána hjá Landsbankanum er 158 milljarðar króna. Þetta eru fjármunir sem ýmis samtök og opinberir aðilar, til að mynda bresk sveitarfélög, áttu á reikningum hjá Landsbankanum við hrun bankans.

Stærstur hluti forgangskrafna er innstæður á Icesave-reikningum. Þær nema 1.161 milljarði króna.

Eignir bankans eru metnar á 1.159 milljarðar króna. Staðfesti dómstólar afstöðu slitastjórnarinnar um að Icesave-kröfur og heildsöluinnlán eigi að telja til forgangskrafna munu eignir bankans duga til þess að greiða um 88% til forgangskröfuhafa.

Heildarskuldir bankans eru 3.427 milljarðar króna. Almennir kröfuhafar fá ekkert greitt upp í sínar kröfur. Miðað við það yfirlit sem kynnt var í gær munu kröfuhafar tapa samtals 2.268 milljörðum króna á falli Landsbankans og eignirnar duga fyrir greiðslu um 34 prósent af heildarskuldum bankans.

Dómsmeðferð stærstu ágreiningsmálanna er þegar komin í gang, meðal annars mál þar sem reynir á gildi neyðarlaganna og stöðu Icesave-reikninga í kröfuröðinni. Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndarinnar, sagði að nokkur ár mundi taka að fá niðurstöður dómsmála um helstu ágreiningsefnin.

Hann sagðist búast við að 8-10 ár gætu liðið áður en uppgjöri Landsbankans lýkur.

peturg@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×