Hagstætt verð á áli hefur áhrif á vöruskiptin 5. mars 2010 11:20
Aukning útflutnings í febrúar, þ.e. án skipa og flugvéla, frá sama tíma í fyrra skýrist einkum af auknum tekjum af útfluttum iðnaðarvörur og nam útflutningsverðmæti þeirra ríflega 26,1 milljörðum kr. í mánuðinum. Þetta er aukning upp á 77,2% á föstu gengi m.v. sama tíma í fyrra og má þakka það 60-70% verðhækkun á áli á tímabilinu.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um vöruskiptin í febrúar en þau voru hagstæð um 13,9 milljarða kr.Í Morgunkorninu segir að myndarlegur afgangur af vöruskiptum í febrúar skrifast fyrst og fremst á samdrátt í innflutningi. Þannig var vöruinnflutningur með minna móti í mánuðinum, og voru alls fluttar inn vörur fyrir 30,4 milljarða kr.Sé leiðrétt fyrir gengisbreytingum var vöruinnflutningur um 9,6% minni nú í febrúar en í sama mánuði í fyrra. Skýring þessa samdráttar liggur að hluta til í að minna er flutt inn af mat- og drykkjarvörum, eldsneyti og smurolíu svo og flutningstækjum en samanlagt var samdráttur þessara liða um 35,5% á föstu gengi.Á hinn bóginn jókst innflutningur fjárfestingavara um 160% á föstu gengi, svo og innflutningur á hrá-og rekstrarvörum um 10% og neysluvörum (t.d. heimilistækjum og fatnaði) um 4,6%.Alls voru fluttar út vörur fyrir 44,3 milljarða kr. í febrúar sem er nokkuð minni útflutningur en á sama tíma í fyrra, eða um 5,3% á föstu gengi. Skýrist það einkum að á sama tíma í fyrra nam verðmæti útfluttra skipa og flugvéla 7,4 milljörðum kr. en að þeim lið frátöldum jókst útflutningur um 17,2% á föstu gengi.Útflutningsverðmæti sjávarafurða var rúm 16,3 milljörðum kr.í mánuðinum og dróst saman um 4,5% frá sama tíma 2009.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira