Endurskoðendur getaorðið blindir á bækurnar 5. maí 2010 05:45 Deilt um endurskoðun. Ekki er horft upp til bókhaldsbrellna í námi í reikningsskilum, að sögn Bjarna Frímanns Karlssonar, lektors við viðskiptafræðideild HÍ. Markaðurinn/Stefán
Endurskoðendur hafa sloppið furðu vel þrátt fyrir að hafa brugðist við gerð ársreikninga banka og fjármálafyrirtækja fyrir hrun. Þetta er mat Bjarna Frímanns Karlssonar, lektors í reikningsskilum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Bjarni hélt erindi í síðustu viku í fyrirlestraröð Háskólans um lærdóma af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hann benti á að endurskoðendur hefðu ofmetið eignir bankanna stórkostlega fyrir hrunið 2008 og ekki fært eignir þeirra niður að neinu ráði þrátt fyrir sterkar vísbendingar um lausafjárvandræði. Þá hafi eigið fé bankanna verið stórkostlega ofmetið. Endurskoðendur hafi átt að gera sér grein fyrir því að bankarnir hafi lánað fyrir kaupum á eigin bréfum og með réttu átt að draga lánveitingarnar frá eigin fé. „Bókhaldsmeðferð var á mjög gráu svæði,“ sagði Bjarni en vildi þó ekki taka afstöðu til þess hvort endurskoðendur hafi brotið lög. Hann taldi þó fullvíst að óhæðið, fjöregg endurskoðenda, hafi beðið hnekki. Þótt margt orki tvímælis í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum geti Íslendingar ekkert við því gert. Þeir eigi ekki sæti í staðlaráðinu en geti reynt að láta rödd sína heyrast. Bjarni taldi ekki við menntun endurskoðenda að sakast enda ekkert í náminu sem hvetji til bókhaldsbrellna. „Þvert á móti er alltaf púðri eytt í siðfræði og tekin dæmi af fyrirtækjum þar sem átt hafi verið við bókhaldið. Aldrei er talað um það með aðdáun. En það má eflaust gera betur. Ég er ekki frá því að efla þurfi siðfræðiþáttinn í náminu,“ sagði Bjarni og benti á að samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar komi fram að tvö endurskoðendafyrirtæki hafi séð um endurskoðun þeirra sex fjármálafyrirtækja sem rannsökuð voru. Því styðji hann hugmyndir þess efnis að sami endurskoðandi skoði ekki reikninga fyrirtækja nema í þrjú ár í senn. „Mér finnst það mjög skynsamlegt. Þegar menn hafa í sjö ár endurskoðað sama fyrirtækið geta þeir orðið húsblindir. Menn hætta að sjá hlutina.“
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira