Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforðinn kominn í rúma 542 milljarða

Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 542,5 milljarða kr. í lok nóvember og hækkaði um 70,6 milljarða kr. milli mánaða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans. Þar segir að erlendur gjaldeyrir jókst um 70,8 milljarða kr. og aðrar eignir minnkuðu samtals um 124 milljónir kr. í mánuðinum.

Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 543,4 milljörðum kr. í lok nóv. samanborið við 472,8 milljarða kr. í lok október . Erlendar skuldir Seðlabanka Íslands námu 236 milljörðum kr. í nóvember samanborið við 240,4 milljarða kr. í lok október.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×