Samtök álfyrirtækja á Íslandi tekin til starfa 19. nóvember 2010 08:08
Samtök álfyrirtækja á Íslandi tóku formlega til starfa í gær en markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og að auka upplýsingagjöf um áliðnaðinn. Í tilkynningu um málið segir að í Capacentkönnun sem gerð var 21.-28. október sl. kemur fram að liðlega 54% landsmanna eru jákvæðir gagnvart íslenskum áliðnaði, liðlega 23% landsmanna eru hlutlausir í afstöðu sinni til iðnaðarins en einungis 22% landsmanna segjast neikvæðir gagnvart áliðnaði hér á landi. „Þessi nýju samtök munu leggja sérstaka áherslu á upplýsingagjöf enda hafa skoðanakannanir sýnt að aðeins 25% landsmanna telja sig þekkja vel til áliðnaðar þrátt fyrir alla þá umfjöllun sem hann hefur fengið. Þá hefur það og sýnt sig að afstaða fólks sem býr í nágrenni við álverin er jákvæðari í garð þeirra. Þetta rímar vel við þá stefnu álfyrirtækjanna að vera góðir grannar. Eftir því sem fólk þekkir betur til iðnaðarins, þeim mun jákvæðara er það. Aukin upplýsingagjöf er því stærsta hagsmunamál áliðnaðarins á Íslandi í dag," segir Rannveig Rist, stjórnarformaður Samáls. „Íslenski áliðnaðurinn er í dag í fararbroddi á heimsvísu hvað umhverfismál varðar. Þannig er heildarlosun gróðurhúsategunda á hvert framleitt tonn hér á landi, að teknu tilliti til losunar vegna raforkuframleiðslu, aðeins um 20% af losuninni sem verður við framleiðslu málmsins í Evrópu. Mikil framþróun hefur átt sér stað í íslenskum álverum hvað umhverfismálin varðar en frá árinu 1990 hefur losun gróðurhúsalofttegunda á hvert framleitt tonn dregist saman um nær 75%. Á árinu 2009 minnkaði losunin á hvert framleitt tonn um 11% frá árinu á undan," segir Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samáls. Á vefsíðu samtakanna, www.samal.is koma fram ýmsar upplýsingar um hagræn áhrif áliðnaðarins, m.a. þær að með afleiddum störfum hafa um 4.300 manns framfæri sitt af álframleiðslu en það samsvarar um 2,4% af vinnuaflinu hér á landi. Þá kemur og fram að útflutningstekjur áliðnaðarins árið 2009 námu 170 milljörðum króna en það samsvarar 22% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Af þessum 170 milljörðum sitja um 70 milljarðar eftir hér á landi í formi launagreiðslna, skatta, orkukaupa og ýmissar þjónustu sem álfyrirtækin kaupa. Þess má geta að íslensku álfyrirtækin eiga árlega viðskipti við tæplega 700 íslensk fyrirtæki, smá sem stór.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira