Viðskipti innlent

Dregur úr bjartsýni fyrirtækjastjórnenda

Vilmundur Jósefsson, formaður SA.
Vilmundur Jósefsson, formaður SA.

Erfiðleikar í atvinnulífinu endurspeglast skýrt í mati stjórnenda fyrirtækja á stöðu og horfum í ársfjórðungslegri könnun Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins.

Á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins er greint frá könnuninni en samkvæmt henni telja 80% stjórnenda aðstæður slæmar, 20% að þær séu hvorki góðar né slæmar en enginn að þær séu góðar. Þetta er svipuð niðurstaða og í fyrri könnunum á árinu.

Samtökin benda hinsvegar á að þeim fari fækkandi sem telja að aðstæður verði betri eftir 6 mánuði. Um 20% svarenda sjá fram á betri tíma eftir 6 mánuði, en í júní sl. var hlutfallið 31%. „Á hinn bóginn telja nú 29% að ástandið eigi eftir að versna samanborið við 28% í júní sl. Svartsýnin er mun meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu," segir í frétt á heimasíðu SA.

Hér má kynna sér könnunina nánar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×