Hafa mánuð til að setja fram andmæli í New York 13. maí 2010 18:30
Hin stefndu í 260 milljarða króna skaðabótamáli slitastjórnar Glitnis hafa þrjátíu daga til að skila greinargerð með andmælum til dómstóls í New York. Án andmæla fellur dómur slitastjórn sjálfkrafa í vil. Lögmenn Jóns Ásgeirs í Bretlandi hafa tekið við kyrrsetningarbeiðninni á hendur honum. Formaður slitastjórnar Glitnis staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að búið sé að birta lögmönnum Jóns Ásgeirs stefnu slitastjórnar og kyrrsetningarbeiðnina. Unnið var að því í dag að koma stefnunni til hinna sex sem er stefnt. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, segir það sérstakt að slitastjórn Glitnis hafi ákveðið að höfða skaðabótamálið í New York. Hann bendir á að Glitnir sé undir skiptum samkvæmt íslenskum lögum og því ættu dómstólar hér á landi að geta skorið úr um málið. „Ég skil eiginlega ekki hvernig og á hvaða forsendum það er gert, ef menn minnast þess að það var talið frekar óeðlilegt að Jón Ólafsson höfðaði meiðyrðamál á hendur Hannes Hólmstein í London og gerði honum nánast ómögulegt að verjast að þá skuli íslenskt þrotabú kjósa sér eitt dýrasta varnarþing í heimi sem er New York og gera mönnum gjörsamlega ómögulegt að verjast kröfum sem eru sérstakar." Sigurði sýnist helsta markmiðið hjá þrotabúi Glitnis vera að taka ákveðinn hóp manna úr umferð. Hann bendir á að skatturinn hafi þegar kyrrsett eignir Jóns Ásgeirs á Íslandi. „Og hann er eignalaus, þannig að ég átta mig ekki á þessu, þetta er „excersise in overkilling". Hin stefndu hafa nú þrjátíu daga til að skila greinargerð með andmælum til dómstólsins í New York, að öðrum kosti fellur dómur slitastjórn sjálfkrafa í vil.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira