Staða ríkissjóðs versnar, tekjur lækka og gjöld hækka 14. maí 2010 07:46 Tekjur tímabilsins janúar-mars voru áætlaðar 115,0 milljarðar kr. og frávikið því neikvætt um 4,0 milljarða kr. eða sem nemur 3,5% af áætlun.
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2010 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um 10,3 milljarð kr., sem er 5,4 milljörðum kr. lakari útkoma en á sama tímabili árið 2009. Tekjur reyndust 11,2 milljarða kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 7,7 milljarða kr.Greint er frá þessu á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að innheimtar tekjur ríkissjóðs í mars námu 29,7 milljarða kr. samkvæmt þessu bráðabirgðauppgjöri, og á fyrstu þremur mánuðum ársins samtals 111,0 milljarðar kr. Tekjuþróunin er heldur lakari en að var stefnt, sé útkoman borin saman við áætlun um hve stór hluti fjárlagaáætlunarinnar myndi innheimtast á þessu tímabili.Tekjur tímabilsins janúar-mars voru áætlaðar 115,0 milljarðar kr. og frávikið því neikvætt um 4,0 milljarða kr. eða sem nemur 3,5% af áætlun. Þar af er frávik skatttekna neikvætt um 1,7 milljarða kr. eða sem nemur 1,6%.Skatttekjur og tryggingagjöld námu 26,7 milljarða kr. í marsmánuði og 101,8 milljarða kr. samtals í janúar-mars, sem er 4,9 milljörðum kr. minna en á sama tíma 2009.Staðgreiðsla á tekjuskatti og útsvari nam 31,1 milljarði kr. samtals í febrúar og mars og er það einum milljarði króna meira en á sama tíma í fyrra þegar innheimtan var 30,1 milljarði kr.Greidd gjöld námu 131 milljörðum kr. og jukust um 7,7 milljarða kr. frá fyrra ári, eða 6,3%. Milli ára jukust vaxtagjöld ríkissjóðs um 6,8 milljarða kr. Útgjöld til menntamála jukust um 1,3 milljarða kr. og þar af útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 1,8 milljarða kr. milli ára. Óregluleg útgjöld jukust um 631 milljón króna milli ára sem útgjöld vegna ríkisábyrgða skýra að öllu leyti.Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála jukust um 669 milljónir króna milli ára þar sem fjárfesting Landhelgissjóðs í varðskipi skýrir hækkunina að langstærstu leyti. Útgjöld til efnahags- og atvinnumála drógust saman um 2,5 milljarða kr. milli ára þar sem framkvæmdir Vegagerðarinnar skýra 1,1 milljarð króna og Fjarskiptasjóður 535 milljónir króna. Breytingar í öðrum málaflokkum voru svo minni en þær sem hér hafa verið taldar.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira