Seðlabankastjóri telur réttast að stofna eftirlitshóp 14. maí 2010 06:00 Már Guðmundsson
Mati á kerfisáhættu var hér mjög ábótavant, mat á erlendri og innlendri lausafjáráhættu var vanmetið og stofnanaumgjörðin svo gölluð að fólki var ekki ljóst hvar ábyrgðin lá fyrir efnahagshrunið 2008. Þetta segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Hann hélt erindi í vikunni á fundi Samtaka fjármálafyrirtækja um mikilvægi þess að setja traustari ramma um peningastefnuna og fjármálastöðugleikann. Már fór yfir þá þætti sem hefðu átt að vera í lagi fyrir hrunið og kynnti alþjóðlega umgjörð um kerfisáhættu fyrir bæði Seðlabankann, Fjármálaeftirlitið og hjá opinberum stofnunum. Slíkt hafi gefist vel við hagstjórn í Asíu, að sögn Más. „En við megum ekki taka allt og fylgja þeim beint," sagði hann og vísaði til innleiðingar EES-reglna um fjármálafyrirtæki í kjölfar einkavæðingar bankanna. Ekki var farið fram á undanþágur vegna sérstöðu landsins. Þá lagði Már áherslu á að setja þurfi saman hóp fólks, sem verði einu skrefi á undan og velti því viðstöðulaust fyrir sér hvað geti farið úrskeiðis í peningastjórn landsins. „Þetta fólk verður að hugsa um málið í vöku sem svefni," sagði hann. - jab
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira