SA með opna fundi um atvinnumál á landsbyggðinni 4. nóvember 2010 10:35 Vilmundur Jósefsson, formaður SA.
Samtök atvinnulífsins (SA) efna til opinna funda á landsbyggðinni um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn dagana 9.-12. nóvember. Í tilkynningu segir að Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA muni ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins. Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, segir að í komandi viðræðum verði lögð á það áhersla af hálfu SA að allir hópar fái sambærilega og hóflega launahækkun og að samningar allra aðila hafi sama gildistíma sem verði allt að þremur árum. „Ríkisstjórnin verður að koma að borðinu þar sem Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að tryggja atvinnuuppbyggingu og að greitt verði fyrir fjárfestingum. Einnig verður að taka til baka margar af þeim skattabreytingum sem ákveðnar hafa verið og gera ekki annað en að gera starfskilyrði atvinnulífsins verri en í nálægum löndum og eru ekki til þess fallnar að auka tekjur ríkisstjóðs. Þá verður að eyða óvissu um rekstrarskilyrði sjávarútvegsins," segir Vilmundur. Formaður Samtaka atvinnulífsins leggur þunga áherslu á að það sé algjört forgangsmál að koma atvinnulífinu af stað á nýjan leik, skapa ný störf og minnka atvinnuleysið sem allra fyrst. Að því muni SA stefna. Fyrsti fundurinn fer fram í hádeginu þriðjudaginn 9. nóvember á Hótel Ísafirði, annar fundurinn verður að morgni fimmtudagsins 11. nóvember á Hótel KEA á Akureyri, sá þriðji fer fram í hádeginu sama dag á Veitingahúsinu Sölku á Húsavík og sá fjórði verður haldinn í hádeginu föstudaginn 12. nóvember í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundirnir eru öllum opnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vefsíðu SA.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira