Sementsverksmiðjan ógreidd í sjö ár 7. desember 2010 03:30 Ríkisendurskoðun gagnrýnir hvernig fjármálaráðuneytið hefur haldið á málum vegna sölu á Sementsverksmiðjunni árið 2003. Söluverðið hefur enn ekki verið greitt. Fréttablaðið/GVA
Ríkið hefur ekki enn fengið greitt fyrir Sementsverksmiðjuna hf., sem seld var Íslensku sementi ehf. í október 2003. Söluverðið var 68 milljónir króna, en skuld við ríkissjóð stendur nú í 118 milljónum króna með vöxtum og dráttarvöxtum, að því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Stofnunin gagnrýnir hvernig fjármálaráðuneytið hefur haldið á málinu. Fyrirvarar voru í kaupsamningnum um samþykki ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, og Samkeppniseftirlitsins. Rannsókn ESA tók fimm ár, og átelur Ríkisendurskoðun eftirlitsstofnunina fyrir hversu langan tíma rannsóknin tók. Eftir að ESA og Samkeppniseftirlitið höfðu samþykkt söluna var reynt að innheimta söluverðið frá kaupanda. Lögmaður Íslensks sements lýsti því hins vegar yfir að þar sem ákvörðun ESA hafi ekki verið birt hefði fyrirvörum sölusamningsins ekki verið aflétt. Í samningnum var kveðið á um að kaupandinn skyldi leggja fram bankaábyrgð fyrir kaupverðinu sem gilda ætti til greiðsludags. Við undirritun lagði kaupandinn hins vegar fram bankaábyrgð sem gilti einungis í tæpa sex mánuði, án þess að ríkið sem seljandi gerði athugasemd við það. Fjársýsla ríkisins sendi innheimtubréf til Íslensks sements í maí síðastliðnum. Í skýrslu ríkisendurskoðunar segir að bréfinu hafi ekki verið svarað.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira