Seltjarnarnes áætlar 50 milljóna afgang á næsta ári 7. desember 2010 13:19
Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur samantekins ársreiknings Seltjarnarnesbæjar á næsta ári verði 50 milljónir króna. Útsvarsprósenta á árinu 2011 verður 12,98%, sem er undir leyfilegu hámarksútsvari sem er 13,28%. Útsvarstekjur eru áætlaðar 1.620 milljónir kr. Tekjur af fasteignasköttum eru áætlaðar 190 milljónir kr. sem er sama álagning í krónum talið og árið 2010. Í tilkynningu um málið segir að fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2011 var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar í gær. Áætlunin var unnin sameiginlega af öllum bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks, Neslista og Samfylkingar líkt og gert var fyrir árið 2010. Við gerð áætlunarinnar var leitað allra leiða til þess að mæta alvarlegum samdrætti í tekjum bæjarins og kostnaðarhækkunum með áframhaldandi hagræðingu í rekstri að leiðarljósi. Þrátt fyrir verulegan niðurskurð útgjalda á sl. tveimur árum lá fyrir að brúa þyrfti bil sem nemur um 10 - 15% af skatttekjum bæjarins á yfirstandandi ári. Vandlega var farið yfir einstök rekstrarsvið og útgjaldaþætti í þeim tilgangi að ná fram enn meiri rekstrarhagræðingu, draga úr kostnaði og takast á við áleitnar spurningar um eðli, tilgang og réttmæti þeirra. Bæjarfélagið hefur undanfarið reynt að halda uppi sama þjónustustigi með minna fé til ráðstöfunar. Dregið hefur verið úr yfirbyggingu rekstrarins og mannafl samnýtt á ýmsa vegu. Ströng hagræðingarkrafa er gerð til yfirstjórnar, sem og stjórnunardeilda stofnana sveitarfélagsins. Samþykkt er að framlengja lækkun launa stjórnenda bæjarins fyrir árið 2011, einnig verður framlengt að bæjarfulltrúar fái ekki greidd nefndarlaun fyrir árið 2011. Starfsfólk Seltjarnarnesbæjar tekur að sér aukin verkefni auk þess sem áhersla er lögð á enn frekara samstarf milli stofnana og deilda í því skyni að ná sem mestri rekstrarhagræðingu. Hagrætt verður í viðhaldsverkefnum og þeim forgangsraðað af brýnni þörf og öryggissjónarmiðum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira