Afgangur af vöruskiptum eykst um 44% milli ára 7. desember 2010 11:23
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins nemur afgangur af vöruskiptum 108,9 milljörðum kr. sem jafngildir aukningu upp á rúm 44% á föstu gengi frá sama tímabili fyrir ári. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig hafi vöruútflutningur aukist um tæp 15% á tímabilinu reiknað með þessum hætti á sama tíma og vöruinnflutningur hefur aukist um tæp 9%. Hvað útflutning varðar þá skýrist þessi aukning einna helst af auknum tekjum af útfluttum iðnaðarvörum en útflutningsverðmæti þeirra er ríflega þriðjungi meira en á sama tímabili í fyrra, sé leiðrétt fyrir gengisbreytingum. Sem kunnugt er má rekja þessa þróun að stærstum hluta til verðhækkunar á áli á heimsmarkaði á tímabilinu. Skýring á auknum innflutningi liggur að mestu í að innflutningur á hrá- og rekstrarvörum er um fimmtungi meiri nú en á sama tíma í fyrra á föstu gengi og innflutningur fjárfestingavara um 62% meiri. Á hinn bóginn hefur innflutningur flutningatækja dregist saman um 39% á tímabilinu og er eini liðurinn, að innfluttum vörum ótilgreindum annars staðar undanskildum sem dregist hefur töluvert saman á tímabilinu. Greiningin segir að telja megi nokkuð víst að um metafgang af vöruskiptum verði að ræða í ár. Þannig er útlit fyrir að hann muni verða á bilinu 115-125 milljarðar kr. og verði það raunin þá hefur hann ekki verið meiri í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt aftur og tölur Hagstofu ná. Í fyrra nam vöruskiptaafgangurinn 6% af vergri landsframleiðslu (VLF) en nú stefnir í að hann verði um 7-8% af áætlaðri VLF ársins.
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira