Kröfur lækka um 30 milljarða í þrotabú Kaupþings 18. mars 2010 05:00 kröfurnar flokkaðar Tæplega þrjátíu þúsund kröfur bárust í bú Kaupþings um áramótin. fréttablaðið/valli
Gott jafnvægi er komið á útlánasafn Kaupþings, sem er með tvö lánasöfn í virkri stýringu: norrænt og evrópskt. Þá hafa kröfur í búið lækkað um 30 milljarða kr. með endurskoðun á kröfuhafaskrá bankans. Lán í virkri stýringu námu 451 milljarði króna í lok síðasta árs miðað við mat skilanefndar. Af þeim voru í lok árs um 376 milljarðar eða um 83 prósent í skilum og um sautján prósent á athugunarlista. Til samanburðar var einungis tæplega helmingur þeirra í skilum í lok júní í fyrra. Þetta er á meðal þess sem fram kom á fundi skilanefndar Kaupþings með kröfuhöfum bankans í London í Bretlandi á mánudag. „Við lögðum mikla vinnu í endurskipulagningu lánasafnsins á síðasta ári og markvissa eignastýringu. Árangur er góður því nú er stærstur hluti lánasafnsins í skilum," segir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings. Hann bendir á að tekjur eignastýringarsviðs bankans nægi fyrir öllum rekstrarkostnaði utan aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Stefnt er að því að auka virði eignanna á árinu. - jab
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira