Bílaleiga Akureyrar kaupir 30 Kia bíla af Öskju 16. júní 2010 12:00 Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar og Jón Trausti Ólafsson (th)framkvæmdastjóri Öskju innsigla samning um að fjölga stórlega Kia bílum í flota Bílaleigu Akureyrar. Með þeim á myndinni er Kjartan Baldursson, sölustjóri Kia hjá bílaumboðinu Öskju.
Bílaleiga Akureyrar hefur samið við Bílaumboðið Öskju um kaup á liðlega 30 nýjum Kia bifreiðum sem afhentar verða á næstu vikum. Eins og fram hefur komið í sölutölum Bílgreinasambandsins hefur sala á nýjum bílum tekið að glæðast undanfarið og má meðal annars rekja það til þess að bílaleigurnar hafa verið að endurnýja flota sína fyrir sumarið. Í tilkynningu segir að forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar eru bjartsýnir á ferðasumarið 2010 og segja að eftirspurn eftir bílaleigubílum sé nú aftur að færast í eðlilegt horf eftir talsverðan samdrátt í bókunum í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Bílaleiga Akureyrar hefur mjög góða reynslu af bílum frá Kia en við höfum boðið upp á þá undanfarin ár. Við förum alltaf varlega í sakirnar þegar nýjar tegundir eru annars vegar en eftir þá góðu reynslu sem við höfum af Kia bílum erum við nú tilbúnir til að stórfjölga þeim í flotanum okkar," segir Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar í Reykjavík. „Við hjá Öskju erum ánægðir með að Bílaleiga Akureyrar heldur áfram að fjölga Kia bílum í flota sínum en Kia er sá framleiðandi sem er í hvað mestum vexti í bílaheiminum í dag," segir Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri Öskju. Flestir bílanna sem Bílaleiga Akureyrar kaupir að þessu sinni eru Kia cee'd fólksbílar en einnig Kia jeppar og sendibílar.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira