Viðskipti innlent

Eignir tryggingarfélaga hækkðu um 310 milljónir í apríl

Heildareignir tryggingarfélaganna námu 137,5 milljörðum kr. í lok apríl og hækkuðu um 310 milljónir kr. milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að útlán og markaðsverðbréf námu 85,3 milljörðum kr. og hækkuðu um 1,8 milljarði kr. sem að mestu skýrist af verðtryggðum markaðsskuldabréfum sem hækkuðu um 1,7 milljarði kr.

Handbært fé nam 13,7 milljörðum kr. og lækkaði um 800 milljónir kr. og aðrar eignir lækkuðu um 890 milljónir kr. og námu rúmlega 32 milljörðum kr.

Skuldir lækkuðu um 530 milljónum kr. og námu 83,5 milljörðum kr. og eigið fé jókst um 840 milljónum kr. og nam rúmlega 54 milljörðum kr. í lok mánaðarins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×