FME gerir athugasemdir við starfsemi Sparnaðar ehf. 16. júní 2010 08:20
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur birt á vefsíðu sinni ýmsar athugasemdir sem eftirlitið hefur gert við starfsemi Sparnaðar ehf. Fram kemur að unnið er að endurbótum á starfseminni.Á vefsíðu FME segir að framkvæmd var athugun á starfsemi Sparnaðar ehf., vátryggingaumboðsmanns Bayern Versicherung Lebensversicherung (VKB), með heimsókn og gagnaöflun 18. maí 2009. Athugunin beindist að því að skoða starfsemi Sparnaðar ehf., þá sérstaklega upplýsingagjöf og kynningarefni viðskiptavina á Séreignatryggingu.Í kjölfar athugunarinnar rituðu fulltrúar Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna fresta. Voru drög að skýrslunni afhent framkvæmdastjóra Sparnaðar ehf. ásamt tengilið þýska félagsins þann 6. nóvember 2009 og þeim gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum félagsins og frekari upplýsingum á framfæri.Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 3. mars 2010, var tekið tillit til þeirra athugasemda eftir því sem tilefni þótti til.Meðal þess sem FME gerði athugasemdir við var að á samningseyðublaði um Séreignatryggingu væri óljóst hver viðsemjandi væri.Gerð var athugasemd við að ekki væri tilgreint á samningseyðublaðinu hver vátryggingaumboðsmaður fyrir VKB væri hér á landi. Þá var einnig gerð athugasemd við að ekki kæmi fram á samningseyðublaðinu að viðskiptavinir gætu snúið sér beint til vátryggingaumboðsmanns VKB hérlendis, þ.e. Sparnaðar ehf., varðandi riftanir og uppsagnir samninga. Viðskiptavinum er einungis vísað beint til þýska félagsins erlendis.Gerð var athugasemd við að ekki væri upplýst um efni þeirra þýsku lagaákvæða, sem viðskiptavinir eiga að staðfesta að farið hafi verið eftir, í kynningarefni til viðskiptavina samanber lög um vátryggingasamninga.Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við að tryggð ávöxtun væri sögð 2,25% í skilmálum VKB en ávöxtun er í raun 1,38% þegar búið er að taka tillit til kostnaðar.Gerð var athugasemd við skilmála VKB, en þar eru ákvæði sem ekki eru í boði hér á landi eða samræmast ekki íslenskum lögum.Gerð var athugasemd við að sjóðfélagar fengju ekki yfirlit sem innihéldi upplýsingar um inngreiðslur í evrum og krónum fyrir hvert tímabil ásamt samantekt á nafnverðsgreiðslum og inneign (réttindum).Unnið er að úrbótum á ofangreindum atriðum hjá Sparnaði ehf. og VKB, að því er segir á vefsíðu FME.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira