SA fagna áformum um byggingu einkasjúkrahúss 22. febrúar 2010 13:32
Samtök atvinnulífsins (SA) fagna áformum Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar (Kadeco) og Iceland Healthcare um að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á sjúkrahúsinu að Ásbrú, í Reykjanesbæ. Á sjúkrahúsinu verða þrjár skurðstofur og 35 legurými, þar sem boðið verður upp á sérhæfðar meðferðir fyrir útlendinga.Í frétt um málið á vefsíðu SA segir að allt að 300 störf muni skapast í tengslum við starfsemina. Gert er ráð fyrir að þjónustuþegar verði um 1.000 talsins fyrsta starfsárið en tvöfaldist síðan á næstu tveimur árum, með árlegum tekjum sem áætlaðar eru um 3,5 milljarðar króna.Aðeins með sköpun nýrra starfa og aukinni verðmætasköpun er unnt að útrýma atvinnuleysi og tryggja störf fyrir þá sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu árum. Meginleiðin til að ná aftur fyrri styrk er að fjárfesta í atvinnulífinu, auka útflutning á vörum og þjónustu, og því eru ofangreind áform verulega jákvæð. Jafnframt er ljóst að Íslendingar standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum í heilbrigðismálum og leita verður allra leiða til hagræðingar og bæta nýtingu fjármuna.Í nýju riti SA Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins er að finna stefnumörkun Samtaka atvinnulífsins í heilbrigðismálum. Þar kemur m.a. fram að hlutur einkaaðila í veitingu heilbrigðisþjónustu á Íslandi er of lítill en SA leggja áherslu á að unnið verði út frá ábendingum OECD um heilbrigðismál á Íslandi.Hér á landi er þjónusta í of miklum mæli veitt af dýrum þjónustuaðilum á óþarflega háu tækni- og þjónustustigi, kostnaðarþátttöku er ekki beitt nægilega markvisst og ekki er nægileg samkeppni á milli þjónustuaðila. OECD telur kostnað í íslenska heilbrigðiskerfinu geta lækkað um 1,5% af landsframleiðslu án þess að dregið sé úr þjónustu.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira