Heimilt verði að kyrrsetja eignir í skattrannsóknum 22. febrúar 2010 15:17
Stjórnarfrumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að kyrrsetja eignir aðila sem eru í skattrannsókn. Um er að ræða breytingar sem á að gera á lögum um tekjuskatt.Í greinargerð með frumvarpinu segir um fyrstu grein þess að þar er lagt til að heimilt verði að kyrrsetja eignir aðila sem eru til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Mál er sæta rannsókn vegna gruns um brot gegn skattalögum eru oft afar vandmeðfarin og taka auk þess eðli máls samkvæmt mun lengri tíma en venjulegar skattákvarðanir.Vegna langs rannsóknartíma getur verið hætta á að eignum sé komið undan enda er skattaðilum oftast ljóst þegar við upphaf rannsóknar að til endurákvörðunar opinberra gjalda muni koma og að lögbundnum fésektum verði beitt. Það er því mikilvægt að tryggt sé að þeir aðilar sem eru til rannsóknar geti ekki með skipulegum hætti komið eignum undan og er ákvæðinu ætlað að koma í veg fyrir það.Með ákvæðinu er greiðsla í ríkissjóð vegna yfirvofandi skattkrafna ríkisins og fésektarkrafna mun betur tryggð. Gert er ráð fyrir að heimilt sé að beita kyrrsetningu gagnvart skattaðilanum sjálfum og öðrum þeim er bera ábyrgð á skattgreiðslum hans ...sem og öðrum þeim er grunur um refsiverða háttsemi beinist að og kann þar af leiðandi að verða gert að greiða fésekt vegna refsiverðra brota.Lagt er til að tollstjóri annist rekstur mála vegna kyrrsetningarkröfu að undangenginni sérstakri tilkynningu skattrannsóknarstjóra ríkisins til tollstjóra. Lagt er til að almennar reglur um kyrrsetningu fjármuna gildi um kyrrsetningu samkvæmt greininni eftir því sem við á, en þar er einkum vísað til um kyrrsetningu, lögbann o.fl.Þá er lagt til að ráðstafanir samkvæmt greininni falli niður um leið og ljóst er að rannsókn skattrannsóknarstjóra muni ekki leiða til hækkunar á sköttum eða fésekt. Að sama skapi getur skattaðili fengið kyrrsetningarráðstafanir felldar brott með því að inna af hendi greiðslur sem kyrrsetningu er ætlað að tryggja.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira