Niðurfelling starfsmanna Kaupþings skattlögð 22. febrúar 2010 18:34
Starfsmenn Kaupþings sem fengu skuldir sínar við bankann felldar niður gætu þurft að greiða allt að sautján og hálfan milljarð króna í skatt. Þetta má ráða af áliti sem Ríkisskattstjóri hefur sent frá sér. 130 starfsmenn Kaupþings fengu 47,3 milljarða króna að láni frá bankanum til hlutabréfakaupa. Gamla stjórn bankans ákvað á stjórnarfundi tveimur vikum áður en að bankinn féll að fella niður allar persónulegar ábyrgðir starfsmannanna vegna lánanna. Skattyfirvöld hafa undanfarið unnið að áliti um hvort að niðurfellingarnar á lánunum séu skattskyldar. Samkvæmt heimildum barst Arion banka, sem tók lánin yfir, álitið fyrir helgi. Í því kemur fram að niðurfellingin myndi skattskyldar tekjur þar sem aðeins tiltekinn hópur starfsmanna fékk þessi lánakjör á grundvelli starfssambandsins við bankann og því má líta á þetta sem hluta af launakjörum. Ljóst er að nái þetta fram að ganga munu skattaskuldir þeirra sem töldu sig hafa sloppið með skrekkinn verða himinháar - eða allt að sautján og hálfur milljarður króna. Meðal þeirra sem fengu lán og fá væntanlega háan reikning frá skattinum eru Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Kristján Arason. Lánveitingar til þeirra þriggja nema tæplega 15 milljörðum króna. Ekki er þó víst að sautján og hálfur milljarður skili sér í ríkiskassann, þar sem skattlagningarrétturinn kann að vera erlendis í einhverjum tilfellum auk þess sem greiðslugeta viðkomandi getur verið slæm.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira