Dráttur á gögnum frá Lúxemborg Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 2. mars 2010 18:40
Hálfs árs dráttur getur orðið á því að embætti sérstaks saksóknara fái gögn sem efnahagsbrotadeildin í Lúxemborg lagði hald á í húsleit í Banque Havilland. Fyrir um hálfum mánuði gerðu um fjörutíu lögregluþjónar í Lúxemborg húsleit í bankanum Banque Havilland sem áður var Kaupþing. Húsleitin var gríðarlega umfangsmikil en hún tengist viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi og skuldatryggingum. Því er þó ekki að heilsa að embættið sé búið að fá gögnin í hendurnar. Ferlið er flóknara en svo í landinu þar sem bankaleyndin er í hávegum höfð. Eftir húsleitina voru gögnin send til rannsóknardómara í Lúxemborg. Viðskiptavinir bankans sem gögnin varða og bankinn sjálfur höfðu þá tveggja vikna frest til að kæra haldlagninguna á gögnunum. Fresturinn rann út á föstudag og hefur fréttastofa reynt að fá svör um hvort slík kæra hafi borist. Ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum. Ef kæra berst er ljóst að það mun seinka rannsókn sérstaks saksóknara en um hálft ár getur liðið þar til úrskurður fæst í málinu. Ef engin kæra hefur borist munu samt líða um þrír mánuðir þar til gögnin skila sér hingað til lands. Þriggja manna nefnd á vegum rannsóknardómarans mun þá fara yfir gögnin og ganga úr skugga um að þau passi við réttarbeiðnina.
Mest lesið Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sjá meira