Hagnaður Eimskips umfram væntingar 18. ágúst 2010 10:50
Hagnaður Eimskips fyrstu sex mánuði árins 2010 er umfram væntingar að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu en rekstrarhagnaður var jákvæður um 3,4 milljarða íslenskra króna. Hagnaður eftir skatta var 1,3 milljarðar og heildareignir félagsins í lok júní voru 46 milljarðar. Eiginfjárhlutfall Eimskips er nú 54 prósent og vaxtaberandi skuldir eru 12 milljarðar. Ef litið er til annars ársfjórðungs er rekstrarhagnaður jákvæður um 2,1 milljarða og hagnaður eftir skatta 1,1 milljarður. Í tilkynningunni segir að allar rekstrareiningar skili afkomu umfram væntingar. „Flutningamagn á öðrum ársfjórðungi til og frá Íslandi jókst um 11% á milli ára og er það í fyrsta sinn síðan á fyrri helmingi ársins 2008 sem aukning er í flutningum. Flutningar hafa þó dregist verulega saman og er magnið nú svipað og það var árið 2000." Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips segir að þrátt fyrir mjög erfið rekstrarskilyrði hafi tekist að snúa afkomu félagsins við. „Reksturinn hefur verið sniðinn að breyttum markaðsaðstæðum og er árangur þeirrar vinnu að líta dagsins ljós. Starfsemi Eimskips krefst mikilla fastafjármuna og er mikilvægt að afkoman geti staðið undir endurnýjun þeirra," segir Gylfi. „Á síðustu árum hefur félagið ekki varið miklum fjármunum í fjárfestingar tengdum flutningastarfsemi. Sjóðsstaðan er góð og er félagið nú í stakk búið að endurnýja eignir." Gylfi segir það mjög mikilvægt fyrir Eimskip að viðhalda grunnstoð félagsins sem er, flutningakerfið á Norður Atlantshafi, til að tryggja viðskiptavinum áreiðanlega og góða þjónustu.
Mest lesið Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira