Stutt þar til fasteignamarkaðurinn nær botni Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. ágúst 2010 12:59 Íbúðaverð lækkaði um 1,3% í júní. Mynd/ Vilhelm.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,3% í júlí síðastliðnum frá fyrri mánuði samkvæmt vísitölu íbúðaverðs sem tekin er saman af Þjóðskrá Íslands og birt var síðdegis í gær. Greining Íslandsbanka segir að mikið flökt hafi verið í íbúðaverðinu á milli mánaða undanfarið og því betra að skoða þróunina yfir lengri tíma til að fá mynd á hvert markaðurinn er að fara. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi þannig hækkað um 0,2% frá síðustu áramótum en á sama tíma fyrir ári hafði það lækkað um 9,2%. Undanfarna 12 mánuði hafi íbúðaverð lækkað um 2,9% samanborið við 11,2% árið þar á undan. Munurinn sé meiri ef miðað sé við raunverð þar sem verðbólgan hafi hjaðnað hratt undanfarið. Greining segir að það hafi því dregið umtalsvert úr lækkunarhraðanum á þessum markaði sem gæti verið vísbending um að botninn í bæði nafnverði og raunverði íbúðarhúsnæðis sé skammt undan. Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafi lækkað um rúm 34% frá október 2007 þegar að það var hæst og nafnverð um 14,2% frá því að það fór hæst í janúar 2008.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira