Seðlabankinn hyggur á gjaldeyriskaup 18. ágúst 2010 12:53 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Ástæður þess að stýrivextir voru lækkaðir um heilt prósent í dag eru minni verðbólga, lægri verðbólguvæntingar, sterkara gengi krónunnar og horfur á hraðari hjöðnun verðbólgu en áður var reiknað með. Þetta kom fram á fundi í Seðlabanka Íslands í morgun. Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um heilt prósent, en síðan í janúar hefur takturinn í vaxtalækkunum bankans verið hálft prósent í hvert skipti. Á fundinum var einnig rætt um gjaldeyrishöft. Enn ríkir óvissa um hvenær hægt verði að byrja að leysa höftin, og því erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif losun hafta hefur á vaxtastefnuna næstu mánuði. Að lokinni þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins munu forsendur fyrir afnámi haftanna þó vera til staðar hvað varðar gjaldeyrisforða og þjóðhagslegan stöðugleika. Hins vegar valda nýlegir dómar Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar þvílíkri óvissu um styrk fjármálakerfisins að endurskoða þarf áætlun um afnám haftanna. Legið hefur fyrir að Seðlabankinn myndi auka þann hluta gjaldeyrisforðans sem ekki er fenginn að láni á næstu misserum. Nú telur bankinn að gengishækkun krónunnar og lækkandi áhættuálag á íslenskar skuldir gefi svigrúm til gjaldeyriskaupa í þessu skyni. Bankinn mun hefja gjaldeyriskaup þann 31. ágúst næstkomandi, en umfang þeirra verður ákveðið með það að leiðarljósi að áhrif á gengi krónunnar verði sem minnst.
Mest lesið Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira