Fyrrverandi sparisjóðsstjóri grunaður um innherjasvik 27. apríl 2010 18:34
Grunur leikur á að fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs og tveir framkvæmdastjórar hafi nýtt sér innherjaupplýsingar í viðskiptum með stofnfjárhluti í sjóðnum. Fráfarandi stjórn Byrs hefur vísað málinu til sérstaks saksóknara. Einkahlutafélagið H24 var í eigu fyrrverandi yfirmanna hjá Byr Sparisjóði og höfðu því stöðu innherja. Eigendur voru Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, Atli Örn Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs og Sighvatur Sigfússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Í júlí 2007 lögðu þeir félagar stofnfjárhluti að verðmæti tug milljóna í sparisjóðnum inn í félagið. Hlutirnir voru keyptir í maí sama ár og virðist verðmæti þeirra hafa aukist um rúm 260% á þessum tveimur mánuðum. Á þessum tíma voru sameiningarviðræður í gangi milli Byrs og Sparisjóðs Kópavogs. Eingöngu innherjum í þessum fyrirtækjum var kunnugt um fyrirhugaða sameiningu. Samkvæmt heimildum fréttastofa setti fráfarandi stjórn spurningarmerki við hvort að innherjar, þ.e. Ragnar Z., Atli Örn og Sighvatur, hefðu nýtt sér vitneskju sína með ólögmætum hætti. Á stjórnarfundi í Byr í upphafi árs 2008 var samþykkt að veðsetja allt stofnfé félagsins gagnvart Glitni. Bent er á að þetta hafi verið gert þrátt fyrir að ákvæði í lánasamningum milli H24 og SPK segi til um að allir hlutir félagsins skuli veðsettir SPK og þá síðar Byr. Með þessum gjörningi hafi bréfin í raun verið tvíveðsett og mögulegt að stjórnin hafi valdið Byr skaða með samþykkt sinni. Í nóvember sama ár undirritaði sparisjóðsstjórinn Ragnar Z. fyrir hönd Byrs skilmálabreytingar á láni til H24, sem var í hans eigu. Breytingarnar fólust í því að vaxtagreiðslu á láninu var frestað um eitt ár. Aðrir eigendur, þeir Atli Örn og Sighvatur undirrituðu samninginn fyrir hönd félagsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur málinu verið vísað til sérstaks saksóknara. Í samtali við fréttastofu sagði Ragnar Z. að vissulega ættu menn ekki að vasast í eigin málum en skilmálabreytingin hafi farið fyrir stjórn og verið samþykkt af henni. Auk þess sem þáverandi stjórnarformaður hafi kvittað undir hana fyrir hönd stjórnar þegar hún var afgreidd. Þá hafi legið fyrir samkomulag milli Glitnis og Byrs um skiptingu á veðsetningu bréfanna. Hann vísar því alfarið á bug að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar og segir regluvörð hafa samþykkt kaupin. Þá sagði hann ljóst að þar sem félagið H24 væri eignalaust færi það í þrot. Skuldir félagsins nemi yfir eitthundrað milljónum króna.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira