Viðskipti innlent

KEA má eiga 35% í næstelstu fjármálastofnun landsins

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt KEA svf. heimild til að fara með allt að 35% eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu FME.

Sparisjóðurinn er staðsettur á Grenivík. Á vefsíðu hans segir að hann var stofnaður 1. janúar 1879 er hann næst elsta starfandi fjármálastofnun í landinu.

„Eins og gefur að skilja hefur starfsemi sjóðsins breyst verulega á þessum tíma. Miklar breytingar urðu á starfsemi hans árið 1972 þegar sjóðurinn fór að bjóða upp á tékkareikningaviðskipti. Í dag er Sparisjóður Höfðhverfinga þjónustufyrirtæki á fjármálasviði sem veitir alla almenna banka- og fjármálaþjónustu," segir á vefsíðunni.

„Árið 1981 flutti sparisjóðurinn í eigið húsnæði og árið 1999 urðu aftur miklar breytingar þegar sjóðurinn keypti og flutti í húsnæði Íslandspósts hf. Um mitt ár 2000 tók sparisjóðurinn við rekstri póstafgreiðslunnar og sinnti henni til janúarloka árið 2005.

Bæði fyrirtæki og einstaklingar eru í viðskiptum við sjóðinn og oftar en ekki eru þeir annaðhvort búsettir á nánasta starfssvæði sjóðsins eða tengjast því með einum eða öðrum hætti."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×