Viðskipti innlent

Enn er lítið selt af atvinnuhúsnæði

Í október síðastliðnum var 101 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu öllu. Þar af var 45 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og 56 samningum á landsbyggðinni.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heildarfasteignamat seldra eigna á landinu öllu í ágústmánuði var 5,2 milljarðar kr. Fleiri samningum var þinglýst í október síðastliðnum en undanfarna 8 mánuði.

Það sem af er þessu ári hefur 87 kaupsamningum um atvinnuhúsnæði verið þinglýst að meðaltali í mánuði hverjum en miklar sveiflur hafa verið í þessum tölum á milli mánaða.

Markaðurinn með atvinnuhúsnæði hefur varla verið svipur hjá sjón frá bankahruni og hefur veltan dregist gríðarlega saman. Það sem af er þessu ári hefur 870 samningum og afsölum verið þinglýst á landinu öllu en á sama tímabili árið 2006, þegar viðskiptin voru sem mest á þessum markaði, hafði 2.667 samningum verið þinglýst.

Reyndar er enn ekki að sjá að nokkur viðsnúningur hafi orðið á markaðinum með atvinnuhúsnæði. Þannig var færri samningum þinglýst í október í ár heldur en í sama mánuði í fyrra en fækkunin nemur 9% milli ára. Eins og fyrr segir hafði 870 samningum verið þinglýst þegar 10 mánuðir voru liðnir af þessu ári en í fyrra hafði 1.006 samningum verið þinglýst á sama tíma og hefur veltan því dregist saman um 13,5% á milli ára.

Þetta kemur þó varla á óvart í ljósi þess hversu erfitt allt starfsumhverfi er fyrirtækjum um þessar mundir nú þegar tvö ár eru liðin frá bankahruninu, en fjárhagsleg endurskipulagning atvinnulífsins hefur gengið hægar fyrir sig en nokkurn óraði fyrir í upphafi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×